Marz-bræður og Ingibjörg Þorbergs - Bergjum blikandi vín
Marz-bræður og Ingibjörg Þorbergs er 78-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1957. Á henni syngur söngkvartettinn Marz-bræður lagið Bergjum blikandi vín og Ingibörg Þorbergs syngur lagið Heillandi vor með kvartettinum. Hljómsveit Jan Morávek leikur undir. Skapti Ólafsson tekur trommusóló í laginu Bergjum blikandi vín. Marz-bræður eru þeir Magnús Ingimarsson, Ásgeir Sigurðsson, Sigurður Sívertsen og Vilhjálmur B. Vilhjálmsson. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Pressun: AS Nera í Osló.
Marz-bræður og Ingibjörg Þorbergs | |
---|---|
IM 110 | |
Flytjandi | Marz-bræður, Ingibjörg Þorbergs, hljómsveit Jan Morávek |
Gefin út | 1957 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
Lagalisti
breyta- Bergjum blikandi vín (From the vine came the grape..) - Lag - texti: Whitup, Cunningham - Þorsteinn Sveinsson
- Heillandi vor - Lag - texti: Óðinn Þórarinsson - Þorsteinn Sveinsson - ⓘ
Heillandi vor
breytaLagið Heillandi vor fékk 1. verðlaun í danslagakeppni SKT árið 1955. Ingibjörg söng lagið í keppninni, en sú útsetning sem heyrist á plötunni, með Ingibjörgu og Marz-bræðrum, var fyrst leikin í Revíukabarett Íslenskra tóna á Austurbæjarbíói 1955.