Hvítur nashyrningur
Hvítur Nashyrningur (ceratotherium simum), er stærsta tegund nashyrninga, og stærsta landspendýrið, ásamt flóðhestum, á eftir fílum.
Hvítur nashyrningur | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Rhinocerus simum |
Almenn Lýsing
breytaHvítur Nashyrningur er ekki hvítur heldur ljósgrár. Hollenskir landnemar í Afríku kölluðu þessa tegund 'víðan nashyrning' (wyd) en ekki tókst Englendingum betur með þýðinguna en svo að hann varð hvítur. Lengd frá höfði til botns er um 320-370 cm, og hæð er 190-200 cm. Að vigt er fullvaxið karldýr um 2900 kg. Nokkur karldýr geta náð lengd uppá 5 metra og vigt uppá 3600 til 4000 kg.
Undirtegundir
breytaAf hvítum nashyrningum eru 2 undirtegundir nyrðri & syðri:
- ceratotherium simum simum - latnest heiti syðri undirtegundarinnar.
- ceratotherium simum cottoni - latnest heiti nyrðri undirtegundarinnar.
Líffræði
breytaMeðgöngutími hvítra nashyrninga er um 16 til 17 mánuðir, og fæðist þá 1 afkvæmi, en sárasjaldan 2. Hvítir nashyrningar verða 50-60 ára.
Varðveisla
breytaÍ gegnum tíðina hefur syðri undirtegundin verið í mikilli útrýmingarhættu sökum óheftrar veiði. Árið 1880 voru aðeins 25 - 30 einstaklingar eftir í Umfolozi, í Suður-Afríku. Verndaraðgerðir eru enn strangari en fyrir aðrar tegundir hefur stofnin stækkað nokkuð. Á sjöunda áratuginum voru margir einstaklingar fangaðir og færðir í dýragarða og friðlýst svæði.
Nokkuð ólíkt er hlutskipti nyrðri undirtegundarinnar. Árið 1970 taldi stofninn um 500 dýr, en féll niður í aðeins 5-10 árið 2006 vegna ólöglegra veiða. Árið 2008 var hann skilgreindur útdauður í náttúrunni og aðeins að finna í dýragörðum.[1]
Tilvísanir
breyta- ↑ Lisa Winter (21. október 2014). „There Are Now Just Six White Rhinos Left On Earth“ (enska). IFLScience. Sótt 22. október 2014.
Bibliografia
breyta- (ITA) Daryl e Sharna Balfour (1992), RINO. Caratteristiche e abitudini di vita di una specie minacciata di estinzione - Gruppo Editoriale Armenia, Pan, Geo S.p.A. Milano ISBN 88-7216-032-4