Framandsteinn
(Endurbeint frá Hnyðlingur)
Framandsteinn (eða hnyðlingur) er í bergfræði steinn sem verður innlyksa í öðrum steini meðan sá síðarnefndi er að myndast. Hugtakið er nær eingöngu notað um steina sem festast inni í storkubergi, en hugtakið mætti einnig nota um steina sem festast inni í setbergi.
Lýsing
breytaBergmolar sem hafa brotnað úr veggjum gosrása eða kvikuhólfa og borist upp með kvikunni. Molarnir eru oftast nær af annarri bergtegund en sjálf kvikan.
Uppruni og útbreiðsla
breytaHnyðlingar eru af öllum gerðum bergtegunda. Gabbróhnyðlingar eru algengasti hér á landi en einnig hafa fundist granófýrhnyðlingar.
Heimildir
breyta- Kristján Sæmundsson og Einar Gunnlaugsson (1999) Íslenska steinabókin. ISBN 9979-3-1856-2
- Þorleifur Einarsson (1994) Myndun og mótun lands: Jarðfræði. ISBN 9979-3-0263-1