Halimah Yacob
Halimah binti Yacob (Jawi: حاليمه بنت ياچوب; fædd 23 ágúst 1954) er singapúrskur stjórnmálamaður sem er 8. og fyrrverandi forseti Singapúr. Áður var hún meðlimur í stjórnarflokknum Aðgerðaflokki alþýðunnar (PAP) og var níundi forseti þingsins,[1] frá janúar 2013 til ágúst 2017.
Halimah Yacob حليمة بنت يعقوب | |
---|---|
Forseti Singapúr | |
Í embætti 14. september 2017 – 14. september 2023 | |
Forsætisráðherra | Lee Hsien Loong |
Forveri | Tony Tan |
Eftirmaður | Tharman Shanmugaratnam |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 23. ágúst 1954 Singapúr |
Þjóðerni | Singapúrsk |
Maki | Mohammed Abdullah Alhabshee |
Börn | 5 |
Háskóli | Þjóðarháskólinn í Singapúr |
7. ágúst 2017 sagði hún af sér sem þingmaður, forseti þingsins og úr PAP, til að verða frambjóðandi fyrir forsetakosningarnar 2017 þar sem aðeins stjórnmálamenn af minnihlutaþjóðerni máttu bjóða sig fram (þjóðernishópar rótera forsetaembætti milli sín).
Þann 13. september 2017 varð hún sjálfkjörinn forseti án mótframboðs. [2] Halimah var svarin inn næsta dag[3] og er fyrsti kvenkyns forsetinn í sögu landsins.[4]