Kaliforníuháskóli
Kaliforníuháskóli (e. University of California eða UC) er ríkisrekið háskólakerfi í Kaliforníu í Bandaríkjunum Auk Kaliforníuháskóla eru tveir aðrir ríkisreknir háskólar í Kaliforníu en þeir eru Ríkisháskólinn í Kaliforníu (e. California State University) Alþýðuháskólar Kaliforníu (e. California Community Colleges system). Í raun samanstendur hver þessara stofnana af mörgum háskólum sem njóta nokkurs sjálfstæðis. Í Kaliforníuháskóla eru skráðir nemendur rúmlega 191 þúsund talsins.
Fyrsti háskólinn sem tilheyrir Kaliforníuháskóla var Kaliforníuháskóli í Berkeley, sem var stofnaður árið 1868 en nýjasti skólinn og sá tíundi í röðinni er Kaliforníuháskóli í Merced, sem tók til starfa haustið 2005. Í öllum skólunum tíu sem mynda Kaliforníuháskóla er boðið upp á |bæði grunnnám og framhaldsnám, nema í Kaliforníuháskóla í San Francisco þar sem einungis er boðið upp á framhaldsnám og nám í lækna- og heilbrigðisvísindum og í Lagaskólanum í Hastings sem býður einungis upp á nám í lögfræði.
Skólarnir sem mynda Kaliforníuháskóla eru (auk Lagaskólans í Hastings):
- Kaliforníuháskóli í Berkeley
- Kaliforníuháskóli í Davis
- Kaliforníuháskóli í Irvine
- Kaliforníuháskóli í Los Angeles (UCLA)
- Kaliforníuháskóli í Merced
- Kaliforníuháskóli í Riverside
- Kaliforníuháskóli í San Diego
- Kaliforníuháskóli í San Francisco
- Kaliforníuháskóli í Santa Barbara
- Kaliforníuháskóli í Santa Cruz