House of Gucci
House of Gucci er bandarísk ævisögu-glæpamynd frá árinu 2021 sem Ridley Scott leikstýrði. Myndin er byggð á bókinni The House of Gucci: A Sensational Story of Murder, Madness, Glamour, and Greed eftir Sara Gay Forden frá árinu 2001. Myndin fjallar um Patrizia Reggiani (leikin af Lady Gaga) og Maurizio Gucci (leikinn af Adam Driver) þar sem ástarsamband þeirra breytist í baráttu um yfirráð á ítalska tískufyrirtækinu Gucci. Jared Leto, Jeremy Irons, Jack Huston, Salma Hayek og Al Pacino eru einnig í aðalhlutverki.
House of Gucci | |
---|---|
Leikstjóri | Ridley Scott |
Handritshöfundur |
|
Söguhöfundur | Becky Johnston |
Byggt á | The House of Gucci: A Sensational Story of Murder, Madness, Glamour, and Greed eftir Sara Gay Forden |
Framleiðandi |
|
Leikarar | |
Kvikmyndagerð | Dariusz Wolski |
Klipping | Claire Simpson |
Tónlist | Harry Gregson-Williams |
Fyrirtæki |
|
Dreifiaðili |
|
Frumsýning |
|
Lengd | 158 mínútur[2] |
Land | Bandaríkin |
Tungumál | Enska |
Ráðstöfunarfé | 75 milljónir bandaríkjadala[3] |
Heildartekjur | 153.3 milljónir bandaríkjadala[4][5] |
Scott vildi gera kvikmynd um Gucci ættina eftir að hafa eignast réttinn á bók Forden snemma á fyrsta áratug 21. aldar. Verkefnið dróst í nokkur ár og fjöldi leikstjóra og leikara höfðu verið orðuð við verkefnið áður en að Scott og Gaga tengdust verkefninu formlega í nóvember 2019. Stór hluti leikarahópsins bættist við næsta sumar. Tökur hófust í Ítalíu og stóðu yfir frá febrúar til maí 2021.
Heimsfrumsýning á House of Gucci var haldin í Odeon Luxe Leichester Square kvikmyndahúsinu í London í nóvember 2021. Myndin var frumsýnd í Bandaríkjunum þann 24. nóvember 2021. Hún fékk misjafna dóma frá gagnrýnendum sem hrósuðu frammistöðu leikaranna en gagnrýndu ósamræmi í tóni og klippingu. Gaga og Leto voru tilnefnd til Screen Actors Guild-verðlaunanna, Critics' Choice-verðlaunanna og Satellite-verðlaunanna sem besta leikkona í aðalhlutverki og besti leikari í aukahlutverki. Gaga hlaut einnig tilnefningar til Golden Globe-verðlaunanna og BAFTA-verðlaunanna. Myndin var tilnefnd á 94. Óskarsverðlaunahátíðinni fyrir bestu förðun og hárgreiðslu. Myndin kostaði 75 milljónir bandaríkjadala í framleiðslu og hefur þénað 153 milljónir bandaríkjadala.
Leikarar
breyta- Lady Gaga sem Patrizia Reggiani
- Adam Driver sem Maurizio Gucci
- Al Pacino sem Aldo Gucci
- Jeremy Irons sem Rodolfo Gucci
- Jared Leto sem Paolo Gucci
- Jack Huston sem Domenico De Sole
- Salma Hayek sem Giuseppina "Pina" Auriemma
- Camille Cottin sem Paola Franchi
- Reeve Carney sem Tom Ford
- Alexia Murray sem Silvana Reggiani
- Vincent Riotta sem Fernando Reggiani
- Florence Andrews sem Jenny Gucci
- Mia McGovern Zaini sem Alessandra Gucci
- Mehdi Nebbou sem Said
- Miloud Mourad Benamara sem Omar
- Mădălina Diana Ghenea sem Sophia Loren
- Youssef Kerkour sem Nemir Kirdar
- Antonello Annunziata sem Karl Lagerfeld
- Catherine Walker sem Anna Wintour
- Martino Palmisano sem Richard Avedon
- Gaetano Bruno sem Franco
Heimildir
breytaFyrirmynd greinarinnar var „House of Gucci“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 27. desember 2023.
Tilvísanir
breyta- ↑ „House of Gucci“. Kvikmyndir.is. Sótt 27. desember 2023.
- ↑ „House of Gucci“. British Board of Film Classification. Afrit af uppruna á 12. desember 2021. Sótt 12. desember 2021.
- ↑ Rubin, Rebecca (23. nóvember 2021). „Thanksgiving Box Office: Disney's 'Encanto' to Reign Over Lady Gaga's 'House of Gucci'“. Variety. Sótt 23. nóvember 2021.
- ↑ „House of Gucci (2021)“. Box Office Mojo. Sótt 6. september 2022.
- ↑ „House of Gucci (2021)“. The Numbers. Sótt 18. mars 2022.
Tenglar
breyta- House of Gucci á Internet Movie Database
- Opinbert handrit
- „"House of Gucci" Author Sara Gay Forden Talks the Fashion Dynasty, New Film, and More | Oxygen“. YouTube. 24. nóvember 2021.
- „House of Gucci | Book vs. Movie“. YouTube. abookolive. 25. nóvember 2021.