Greenwich (borgarhluti)
(Endurbeint frá Greenwich (hverfi))
Greenwich (enska: Royal Borough of Greenwich áður London Borough of Greenwich) borið fram [/ˈɡrɛnɪtʃ/]) er borgarhluti í Suðaustur-London og er hluti innri London. Nokkrar mikilvægur byggingar í Greenwich eru stjörnuathugunarstöðin Royal Observatory, Háskólinn í Greenwich og Þúsaldarhvelfingin. Greenwich-baugurinn rennur í gegnum borgarhlutann. Árið 2012 var íbúatala um það bil 260.068 manns.
Nokkur hverfi á svæðinu eru:
- Abbey
- Abbey Wood
- Blackheath Park
- Charlton
- Eltham
- Greenwich
- Kidbrooke
- New Charlton
- Plumstead
- Shooter’s Hill
- Thamesmead
- Woolwich