Grasmúrgróungur
Grasmúrgróungur (fræðiheiti: Pleospora herbarum) er tegund asksvepps sem vex á dauðum plöntum.[1] Grasmúrgróungur finnst á Íslandi og er mjög algengur um allt land.[2]
Grasmúrgróungur | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Grasmúrgróungur vex á vefjum plöntu.
| ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Pleospora herbarum (Pers.: Fr.) Rabenh. |
Hýsiltegundir
breytaÁ Íslandi hefur grasmúrgróungur fundist á dauðum vefjum um 30 tegunda blómplantna.[1] Þessar plöntur eru blóðberg, brjóstagras, fjallabláklukka, fjallanóra, geldingarhnappur, gullmura, héluvorblóm, holtasóley, holurt, hundasúra, hvítmaðra, ilmreyr, líklega jakobsfífill (skráð sem Erigeron alpinus), jöklaklukka, língresi, melablóm, melanóra, melgresi, músareyra, sýkigras, undafífill, vegarfi, vetrarblóm, villilín, þistill, þrenningarfjóla og þúfusteinbrjótur.
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 Helgi Hallgrímsson. 2010. Sveppabókin. Skrudda, Reykjavík. ISBN 978-9979-655-71-8
- ↑ Helgi Hallgrímsson & Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir (2004). Íslenskt sveppatal I - smásveppir. Geymt 17 október 2020 í Wayback Machine Fjölrit Náttúrufræðistofnunar. Náttúrufræðistofnun Íslands. ISSN 1027-832X