Gjáin
Gjáin er gljúfur í Þjórsárdal með mörgum lindum og fossum. Stærsti fossinn heitir Gjáfoss (eða Gjárfoss). Í Gjánni rennur Rauðá sem sprettur upp í Rauðárbotnum milli Sandafells og Fossheiðar, miklu ofar á afréttinum. Hverfur hún síðan niður í sandinn á Hafinu svokallaða og kemur fram úr jörðinni aftur í Gjánni.
Í Gjánni eru fallegar bergmyndanir, stuðlað hraun og móberg. Hraunið nefnist Þjórsárdalshraun og þekur allan dalbotninn neðan við Gjána. Það er hluti af stærra hrauni sem einu nafni nefninst Búrfellshraun og kom upp í gígaröð við Veiðivötn fyrir um 3000 árum. Ætihvönn og gróskumikill blómgróður vex við lindalækina í Gjánni.
Bærinn Stöng í Þjórsárdal stendur við Rauðá neðan við Gjána.
Áður en Búrfells- og Sultartangavirkjanir voru byggðar, flæddi Þjórsá stundum yfir Hafið og niður í Gjána svo Rauðá (og Fossá) urðu stundum mórauðar í leysingum.
Gjáin var friðuð árið 2020. [1]
Tengill
breytaTilvísanir
breyta- ↑ Gjáin, Háifoss, og Hjálparfoss friðlýst Mbl.is , skoðað 21. mars 2021