Gamli salurinn í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum
Gamli-salurinn er íþróttamannvirki í Vestmannaeyjum sem tilheyrir Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum. Gamli-salurinn er jafnframt keppnissalur handknattleiksdeildar ÍBV Íþróttafélags og körfuknattleiksfélags ÍBV. Salurinn er partketlagður og í honum er aðstaða fyrir handbolta, körfubolta, blak og badminton.
Gamli-salurinn | |
---|---|
Fullt nafn | Gamli salurinn í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum |
Staðsetning | Vestmannaeyjar, Ísland |
Hnit | 63°26′22.12″N, 20°17′17.00″W |
Opnaður | 1976 |
Endurnýjaður | 2008 |
Eigandi | Vestmannaeyjabær |
Yfirborð | Parket |
Notendur | |
Handknattleiksdeild ÍBV Körfuknattleiksfélag ÍBV | |
Hámarksfjöldi | |
Sæti | 400 |
Stæði | 300 |
Stærð | |
40m x 20m |
Forsaga
breytaUppbygging Vestmannaeyjakaupstaðar eftir eldgosið á Heimaey 1973 var gífurlegt verk,
enda bærinn illa leikinn eftir beljandi
vikurregn og hraunslettur, sem grandað höfðu og skemmt mannvirki í
bænum.
Af íþróttamannvirkjum hvarf
sundlaugin gamla austur á Urðum
undir hraun, og bygging nýrrar sundlaugar var því aðkallandi verkefni í
endurreisn bæjarfélagsins. Fljótlega
kom upp sú hugmynd að láta nú slag
standa og byggja ekki aðeins nýja
sundlaug heldur íþróttahöll, þar sem
sundlaug og íþróttasalur í fullri,
löglegri stærð yrðu undir sama þaki.
Þessi hugmynd var ennfremur þeim
mun eftirsóknarverðari, þar sem báðir
skólarnir í Eyjum, Barnaskólinn og
Gagnfræðaskólinn, voru komnir í
mikil þrot með húsnæði fyrir gos og
fengju þar með leikfimisalina til
annarra nota, ef af byggingu íþróttahúss yrði. Ráðamenn íþrótta- og
skólamála í landinu féllust á endanum,
eftir mikið þref og þras, á röksemdir
Eyjamanna fyrir byggingu stórs
íþróttahúss.
Var því valinn staður í
svokallaðri Brimhólalaut í jaðri vesturbæjarins nálægt nýjustu íbúðarsvæðunum. Leitað var tilboða innanlands og utan og ákveðið að kaupa
danskt hús, þar sem byggingartíminn
yrði stuttur, enda þörfin mjög brýn
fyrir þúsundir íbúa, sem þyrptust nú á
heimaslóðir eftir vetur- eða vetrasetu á
fastalandinu. Hófust framkvæmdir við
húsið árið 1975, og gekk verkið hratt
og örugglega fyrir sig.
Íþróttahúsið við Brimhóla var formlega opnað á árinu 1976, þegar íþróttasalurinn var tilbúinn í kjölfar sundlaugarinnar. [1]
Endurnýjun
breytaSalurinn fékk andlitslyftingu sumarið 2008, þegar dúkur var fjarlægður og parket var sett í staðinn.