Forsetningarliður
(Endurbeint frá Forsetningaliður)
Forsetningarliður (skammstafað sem fl. eða fsl.) er forsetning ásamt fallorðinu (eða þeim fallorðum sem forsetningin stýrir fallinu á). Forsetningar standa oftast á undan viðkomandi fallorðum.
Hlutverk þeirra er til dæmis að kveða nánar á um ýmislegt (oft staðsetningar) auk þess sem þeir stýra falli. Forsetningarliðir mynda merkingarheild og verða ekki slitnir í sundur þótt orðaröðin breytist (hann kemur í dag ↔ í dag kemur hann).
Stundum gerist það að forsetning hætti að stýra falli (missi fallorð sitt). Þá er sagt að hún hætti að vera forsetning og verði að atviksorði.
- Dæmi: Farðu úr úlpunni. (forsetningarliður) → Farðu úr. (atviksorð)
- Dæmi: Stökktu af bílnum. (forsetningarliður) → Stökktu af. (atviksorð)
Dæmi
breyta- Ballið er á morgun.
- Jón á Rein var vistaður í Svartholinu.
- Ég ætla í leikhús. (forsetning + nafnorð)
- Þeir tala um bóndann. (forsetning + nafnorð)
- Stelpan í græna pilsinu er sæt. (forsetning + lýsingarorð + nafnorð)
- Ég fékk nýtt bréf frá gamla manninum. (forsetning + lýsingarorð + nafnorð)
Heimildir
breyta- Björn Guðfinnson (án árs). Íslensk málfræði. Námsgagnastofnun.
- Þórunn Blöndal (1985). Almenn málfræði. Mál og menning.