Fjallasóti
Fjallasóti (fræðiheiti: Andreaea blyttii), sjaldan nefndur rifsóti,[2] er tegund sótmosa. Hann finnst á Íslandi en er sjaldgæfur.[1] Fjallasóti líkist holtasóta en hefur áberandi miðrák á blöðunum á meðan holtasóti hefur enga miðrák.[1]
Fjallasóti | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||
Ekki metið
(IUCN)
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Andreaea blyttii |
Útbreiðsla og búsvæði
breytaFjallasóti vex í urðum og utan á steinum á snjódældasvæðum og finnst helst hátt upp til fjalla. Þó finnst hann niður í 400 metra hæð yfir sjávarmáli á Vestfjörðum.[3]
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 1,2 Ágúst H. Bjarnason (2018). Mosar á Íslandi. Ágúst H. Bjarnason. ISBN 978-9935-458-80-3
- ↑ Bergþór Jóhannsson (1985). Tillögur um nöfn á íslenskar mosaættkvíslir. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 1. Reykjavík: Náttúrufræðistofnun Íslands.
- ↑ Bergþór Jóhannsson (1990). Íslenskir mosar - sótmosaætt og haddmosaætt. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 13. Náttúrufræðistofnun Íslands, Reykjavík.