Ferrara
Ferrara er borg í Emilía-Rómanja á Norður-Ítalíu og höfuðstaður samnefndrar sýslu um 50 km norðan við Bologna. Nafn borgarinnar kemur fyrst fyrir í heimildum frá Langbörðum árið 753. Borgin varð sérstakt hertogadæmi árið 1471. Hertogadæmið varð hluti af Páfaríkinu árið 1597 og konungsríkinu Ítalíu 1859. Íbúar borgarinnar eru um 135 þúsund.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Ferrara.