Fellalykill
Fellalykill (fræðiheiti Primula alpicola[1]) er blóm af ættkvísl lykla. Honum var fyrst safnað 1926 af Frank Kingdon-Ward og var lýst sem afbrigði af Primula microdonta af William Wright Smith, en síðar skrásettur sem eigin tegund af Otto Stapf.
Fellalykill | ||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Primula alpicola
| ||||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||||
Primula alpicola (W.W. Sm.) Stapf | ||||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||||
Primula microdonta var. alpicola W.W. Sm. |
Lýsing
breytaHann verður 15 - 50 sm (sjaldan að 1m) með mörgum bjöllulaga blómum. Blómin geta verið í ýmsum litum; hvít, gul og ýmsum fjólubláum litbrigðum. Þau eru stundum talin til afbrigða, svo sem; var violacea og var. luna, en ósamræmi er í nafngjöfunum. Sterkan og sætan ilm leggur af blómunum.
Útbreiðsla og búsvæði
breytaFellalykill er upprunninn frá Bútan og suðaustur Tíbet, þar sem hann vex í miklum mæli meðfram Tsangpo (efri hluti Brahmaputra) ásamt Friggjarlykli. Vaxtarsvæði þeirra liggja þó nær aldrei saman; Friggjarlykill kýs rakari jarðveg nær ám og Fellalykill vill þurrari svæði.
Ræktun
breytaÞrífst mjög vel og auðveldur í ræktun. Blómstrar í júlí.[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ Stapf, 1932 In: Bot. Mag. 155: t. 9276
- ↑ Lystigarður Akureyrar; http://lystigardur.akureyri.is/default.aspx?modID=16&pId=1050&fl=2 Geymt 28 febrúar 2021 í Wayback Machine