Farþegaflugvél er flugvél sem hefur fyrst og fremst það hlutverk að flytja farþega gegn greiðslu. Slíkar flugvélar eru yfirleitt reknar af flugfélögum sem eiga eða leigja flugvélarnar.

Airbus A340 breiðþota frá Cathay Pacific-flugfélaginu í Hong Kong.

Hvað telst vera farþegaflugvél er mismunandi milli landa en yfirleitt er miðað við vél með fleiri en 20 sæti fyrir farþega og/eða tómaþyngd sem er yfir 22.680 kíló eða 50.000 pund og minnst tvo hreyfla.

  • Fyrsta farþegaþotan kom til Íslands þann 22. júní 1967. [1]

Tengt efni

breyta
   Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tilvísanir

breyta
  1. Dagurinn þegar fyrsta þotan lenti í Reykjavík Vísir, sótt 27. október 2024.