Fúsíjama Basketball Club International
Fúsíjama Basketball Club International er körfuknattleikslið staðsett í Hnífsdal. Liðið var stofnað 15. október 1999 og er nefnt eftir hæsta fjalli Japans, Fúsíjama.
Fúsíjama BCI | |
Deild | 2. deild karla |
Stofnað | 15. október 1999 |
Saga | 1999- |
Völlur | Ísjakinn |
Staðsetning | Hnífsdalur |
Litir liðs | Svartur, Rauður og hvítur |
Eigandi | Fúsíjama TV |
Formaður | |
Þjálfari | Þórarinn Ólafsson |
Titlar | 1 (2. deild 1992) |
Heimasíða |
Nafn
breytaSökum reglugerða Íþróttasambands Íslands varðandi erlend nöfn þá lék liðið alla opinbera leiki sína undir nafni Reynis Hnífsdals. Liðið gekk hins vegar undir sínu rétta nafni, Fúsíjama, í umfjöllun flestra fjölmiðla [1] [2] [3] [4] og hjá Körfuknattleikssambandi Íslands (KKÍ).[5]
Þjálfarar (Hiroshima)
breytaÞjálfarar síðan 1999:
- Guðni Þór Sigurjónsson 1999-2002
- Ágúst Ívar Vilhjálmsson 2002-2003
- Þórarinn Ólafsson 2003-2005
Formenn (Tokyo)
breytaFormenn síðan 1999:
- Halldór Pálmi Bjarkason 1999-2002
- Kolbeinn Einarsson 2002-2003
- Sturla Stígsson 2003-2005
Fyrirliðar (Nagasaki)
breytaFyrirliðar síðan 1999:
- Stefán Þór Ólafsson 1999-2003
- Ágúst Ívar Vilhjálmsson 2003-2004
- Jakob Einar Úlfarsson 2004-2005
Heimildir
breyta- ↑ Körfuknattleikslið Fúsíjama lagði UMFB í Vestfjarðariðli
- ↑ Kempurnar og Fúsíjama sigruðu um helgina
- ↑ „UMFB tapaði fyrir b-liði Fúsíjama“. Afrit af upprunalegu geymt þann 6. mars 2016. Sótt 30. mars 2012.
- ↑ Hörður á Patreksfirði sigraði Fúsíjama
- ↑ „Reynir Hnífsdal (Fúsíjama) – Körfuknattleikssamband Íslands“. Afrit af upprunalegu geymt þann 16. júlí 2011. Sótt 30. mars 2012.
Tenglar
breyta- Upplýsingasíða á KKÍ.is Geymt 16 júlí 2011 í Wayback Machine