Egill Skúli Ingibergsson
Egill Skúli Ingibergsson (f. 23. mars 1926 í Vestmannaeyjum, d. 22. desember 2021) var borgarstjóri Reykjavíkur 1978-1982.
Egill lauk meistaragráðu í verkfræði við Kaupmannarhafnarháskóla árið 1954. Hann starfaði hjá Orkumálastofnun, Rafmagnsveitum ríkisins, Landsvirkjun og sínu eigin fyrirtæki, Rafteikningu. Árið 1978 var hann ráðinn borgarstjóri Reykjavíkur fyrir vinstri meirihlutann og gegndi því eitt kjörtímabil, til 1982.
Eiginkona Skúla var Ólöf Elín Davíðsdóttir (1930-2019), húsmóðir. Þau eignuðust 4 börn.
Heimild
breyta- Reykjavík.is Geymt 27 september 2007 í Wayback Machine sótt 26. október 2006
Tenglar
breyta
Fyrirrennari: Birgir Ísleifur Gunnarsson |
|
Eftirmaður: Davíð Oddsson |