Colin Archer
Colin Archer (22. júlí 1832 – 3. febrúar 1921) var skipaverkfræðingur og skipasmiður frá Larvik í Noregi. Var hann af skoskum uppruna en foreldrar hans fluttu til Noregs 1825.
Skipasmíðastöð hans var þekkt fyrir að smíða endingargóð og örugg skip. Þekktasta skipið sem Colin Archer byggði er án efa skipið Fram, sem tók þátt í leiðöngrum á Norðurpólinn og seinna í leiðangri Roald Amundsen á Suðurpólinn. Það er til sýnis í Framsafninu í Osló.
Archer er líka þekktur fyrir seglskútu sem hann hannaði fyrir Redningsselkabet (norska björgunarsveitin) sem þeir notuðu í mörg ár. Í dag eru þeir bátar venjulega kallaðir Colin Archer. Fyrsti björgunarbáturinn Colin Archer RS 1 er enn til og er notaður sem safnskip.
Archer eyddi miklum tíma í að reikna út hvernig góður skipsskrokkur ætti að vera. Verk hans eru enn í dag notuð við hönnun nýrra skipa. Björgunarskúturnar hans voru notaðar í Noregi langt fram á 20. öld og enn eru skútur smíðaðar eftir teikningum hans.
Hlekkir
breyta- Ævisaga Colin Archer Geymt 27 september 2007 í Archive.today
- Heimasíða RS 1 Geymt 20 október 2007 í Wayback Machine
- Framsafnið Geymt 9 ágúst 2004 í Wayback Machine
- Siglingakeppni til heiðurs Colin Archer Geymt 27 september 2007 í Wayback Machine