Bruno Schulz
Bruno Schulz (12. júlí 1892 – 19. nóvember 1942) var pólskur rithöfundur af gyðingaættum. Eftir hann liggja aðeins tvær bækur. Önnur þeirra er Krókódílastrætið (Sklepy cynamonowe), sem er smásagnasafn og kom út árið 1934 og í íslenskri þýðingu Hannesar Sigfússonar 1994. Hin bókin er Heilsuhæli undir merki stundarglassins (Sanatorium Pod Klepsydrą) sem kom út árið 1937.
Bruno Schulz var sonur smákaupmanns í bænum Drohobycz. Hann lagði stund á byggingarlist og myndlist, kenndi meðal annars myndlist í heimabæ sínum um langt skeið, auk þess sem hann myndskreytti bækur. Ritstörf stundaði hann einungis í stopulum frístundum, enda liggja ekki eftir hann nema tvær bækur. Bruno varð ekki langlífur, því þýskir nasistar skutu hann til bana á götu árið 1942.