Boðið upp í dans 1 - Barnadansar

Boðið upp í dans 1 - Barnadansar er 45-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1960. Á henni flytja barnakór og hljómsveit Magnúsar Péturssonar ellefu lög. Platan er gefin út í samstarfi við dansskóla Hermanns Ragnars og aftan á plötuumslagi stendur að barnasöngvarnir og dansarnir séu í réttu dans-tempói. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Umslag: Amatörverslunin ljósmyndastofa. Pressun: AS Nera í Osló.

Boðið upp í dans 1 - Barnadansar
Bakhlið
EXP-IM 73
FlytjandiBarnakór, hljómsveit Magnúsar Péturssonar
Gefin út1960
StefnaBarnadansar
ÚtgefandiÍslenzkir tónar

Lagalisti

breyta
  1. Litlu andarungarnir
  2. Í skóginum - Hljóðdæmi
  3. Dýravísur
  4. Sisken
  5. Klappi klapp
  6. La troika
  7. Mallebrok
  8. Heilsast og kveðjast
  9. Reinlanderpolki
  10. Hoppla
  11. Dátadans
 
Platan var pressuð í rauðum og svörtum lit.