Black Eyed Peas
Black Eyed Peas (einnig The Black Eyed Peas) er bandarískur hipphopp hópur stofnaður í Los Angeles, Kaliforníu. Meðlimir hljómsveitarinnar eru will.i.am, apl.de.ap og Taboo.
Black Eyed Peas | |
---|---|
Upplýsingar | |
Önnur nöfn |
|
Uppruni | Los Angeles, Kalifornía, BNA |
Ár |
|
Stefnur | |
Útgáfufyrirtæki |
|
Meðlimir | |
Fyrri meðlimir | |
Vefsíða | blackeyedpeas |
Ferill
breyta1998–2001: Behind the Front og Bridging the Gap
breytaPopp-hljómsveitin skrifaði undir samning hjá Interscope og gaf út fyrstu plötuna sína Behind the Front árið 1998. Platan náði athygli gagrýnenda. Platan innihélt smellinn „Joints & Jams“, sem var notað í myndinni Bulworth. Önnur plata þeirra, Bridging the Gap, kom út árið 2000; hún innihélt lagið „Request Line“ og söng Macy Grey með þeim. Platan seldist í 1,2 milljónum eintaka.
2003–2004: Elephunk
breytaPlatan sem kom sveitinni á kortið var Elephunk sem kom út árið 2003. Þetta var fyrsta platan þar sem Fergie (Stacy Ferguson) söng með þeim en hún kom í staðinn fyrir bakraddasöngkonuna Kim Hill, sem hætti árið 2000. Upphaflega var áætlað að Nicole Scherzinger (aðalsöngkona The Pussycat Dolls) myndi ganga til liðs við sveitina. Hún neyddist til að neita vegna þess að hún var meðlimur Eden's Crush og samningsbundin. Seinna kynnti hún Fergie fyrir will.i.am.
Fyrsta smáskífan sem kom út af plötunni Elephunk var „Where Is the Love?“ og söng Justin Timberlake með sveitinni og varð lagið fyrsti slagari sveitarinnar. Lagið var mjög vinsælt í Bandaríkjunum en það varð einnig vinsælt í Bretlandi og Ástralíu. Lagið „Shut up“ varð líka mjög vinsælt í þessum löndum. Elephunk varð vinsæl um allan heim og fór hún í gull og platínu í Bandaríkjunum, Bretlandi, Þýskalandi og í fleiri Evrópulöndum.
Þriðja smáskífa plötunnar, þrátt fyrir að vera í annarri útgáfu en á plötunni, var „Hey Mama“ og náði það allnokkrum vinsældum.
Lagið „Let's Get Retarded“ var endurútgefið sem „Let's Get It Started“ fyrir alþjóðlega auglýsingu fyrir NBA. Lagið náði þónokkrum vinsældum. Á disknum er það aukalag og er á undan hinu aukalaginu, „Third Eye“. Laginu gekk vel sem smáskífa, sérstaklega í iTunes og var það notað í myndinni Harold & Kumar Go to White Castle. Lagið fékk Grammy-verðlaun árið 2005 fyrir bestu rapp-frammistöðu í dúói eða hópi. Þau tóku aftur upp lögin „Let's Get It Started“ og „Shut Up“ ásamt öðrum lögum á simsku, tungumáli karakteranna í Sims-leiknum. Þessar útgáfur voru notaðar í auglýsingum fyrir iMac G5.
Árið 2004 fór Black Eyed Peas í heimstónleikaferð og komu þau við á mörgum stöðum, meðal annars sums staðar í Afríku og Evrópu.
Útgefið efni
breytaBreiðskífur
breyta- Behind the Front (1998)
- Bridging the Gap (2000)
- Elephunk (2003)
- Monkey Business (2005)
- The E.N.D. (2009)
- The Beginning (2010)
- Masters of the Sun Vol. 1 (2018)
- Translation (2020)
- Elevation (2022)
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 1,2 Kellman, Andy. „The Black Eyed Peas“. AllMusic.
- ↑ 2,0 2,1 „Black Eyed Peas - The E.N.D. Review“. IGN. 9. júní 2009. Sótt 1. ágúst 2020.
- ↑ „Black Eyed Peas speak about current hiatus“. NME. 28. nóvember 2011. Sótt 8. júlí 2020.
- ↑ Endelman, Michael (23. maí 2005). „Black Eyed Peas Carry on with 'Monkey Business'“. Entertainment Weekly. Sótt 2. júlí 2020.