Blönduhlíð
Blönduhlíð er byggðarlag í austanverðum Skagafirði. Sveitin liggur meðfram Héraðsvötnum og nær sunnan frá Bóluá og norður að Kyrfisá.
Brekknapláss er ysti hluti Blönduhlíðar í Skagafirði, frá Þverá út að Kyrfisá. Þar eru nokkrir bæir. Syðst er Þverá, fæðingarstaður séra Jóns Steingrímssonar eldprests. Nokkru utar eru Syðri-Brekkur. Þaðan var Hermann Jónasson forsætisráðherra,[1] faðir Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra, og er minnisvarði um hann þar.[2]
Heimildir
breyta- ↑ Háskólabókasafn, Landsbókasafn Íslands-. „Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 29. maí 2024.
- ↑ „The political dynasties of Iceland“. Iceland Monitor. Sótt 29. maí 2024.
- Hjalti Pálsson (ritstj.): Byggðasaga Skagafjarðar IV. bindi. Akrahreppur. Sögufélag Skagfirðinga, 2007. ISBN 978-9979-861-15-7}
- Hallgrímur Jónasson: Árbók Ferðafélags Íslands. Skagafjörður. Ferðafélag Íslands, 1946.