Blökkumaur
Blökkumaur (fræðiheiti: Lasius niger) eru félagsskordýr sem tilheyra ættbálki æðvængja líkt og vespur og býflugur. Þeir eru ein algengasta tegund maura í Evrópu[1] og nær útbreiðslan langt norður eftir Skandinavíu. Hann finnst þar í skógum, engjum og heiðum, oft undir steinum. Einstaka sinnum setjast þeir að í einangrun í veggjum eða fúnu trévirki í húsum.[2] Tegundin hefur einnig hefur fundist árlega frá 2002 á Íslandi og fyrst árið 1994 samkvæmt Náttúrufræðistofnun.[3]
Blökkumaur | ||||||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Blökkumaur að sinna ullarlúsum
| ||||||||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||||||||
Lasius niger |
Tegundinni hefur verið skipt í tvær; L. niger, sem finnst á opnum svæðum; og L. platythorax, sem er í skóglendi.[4]
Fæða
breytaBlökkumaur nærist helst á hunangsdögg, sem nýtist sem orkuupspretta. Til vaxtar lirfanna safna þeir mikilu magni smáskordýra og lirfa. Þörfin fyrir sykur sem næringu veldur að þeir sækja í sæta matvöru sem manneskjur éta: ávexti, sultur, saft og önnur sætindi.
-
Drottning með vængi
-
Vængjalaus drottning
-
Drottning með egg og púpur
-
Vinnumaurar
Viðbótarlesning
breyta- Douwes, P.; Abenius, J.; Cederberg, B. & Wahlstedt, U. 2012. Steklar: Myror och getingar. Hymenoptera: Formicidae–Vespidae Nationalnyckeln till Sveriges flora och fauna 133 bls. ISBN 978-91-88506-78-8
- Ervik, Kenneth. 2003. Effektiv bekjempelse av maur. Tønsberg skadedyrkontroll. 81 bls. ISBN 9788299665902
Tilvísanir
breyta- ↑ „Þúsundir maura á Íslandi“. RÚV (enska). 18. júlí 2020. Sótt 19. júlí 2020.
- ↑ „Wayback Machine“ (PDF). web.archive.org. 12. nóvember 2014. Afritað af uppruna á 12. nóvember 2014. Sótt 19. júlí 2020.
- ↑ Blökkumaur NÍ. Skoðað 19. júlí 2020.
- ↑ Klotz, John H. (2008). Urban Ants of North America and Europe: Identification, Biology, and Management. Cornell University Press. bls. 39–44. ISBN 978-0801474736.