BBC Two
Sjónvarpsstöð breska ríkisútvarpsins BBC
(Endurbeint frá BBC2)
BBC Two er önnur sjónvarpsstöð breska ríkisútvarpsins BBC. Tilgangur stöðvarinnar var upphaflega að senda út „alvarlegra“ efni um listir og menningu og metnaðarfulla leikna sjónvarpsþætti. Stöðin hóf útsendingar 20. apríl 1964 undir heitinu BBC2 og var þá þriðja breska sjónvarpsstöðin á eftir BBC One og ITV.[1] Stöðin hóf útsendingar í lit, fyrst evrópskra sjónvarpsstöðva, 1. júlí 1967.[2] Meðal þekktra sjónvarpsþátta sem voru fyrst sýndir á BBC Two eru Ég, Kládíus (1976), Hótel Tindastóll (1975-1979), Já ráðherra (1980-1988), Lífið á jörðinni (1979), Norðlendingar (1996) og Top Gear (1978-).[heimild vantar]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Catch BBC-2 - now, and perhaps never again, is the moment for courage, adventure, and the pursuit of excellence“. Newspapers.com (enska). The Guardian. 19 Apr 1974. bls. 15. Sótt 5. júní 2023.
- ↑ TV Technology 8. Britain In Colour – and UHF. Screenonline, Richard G. Elen. Retrieved 26 November 2010.