Béla Tarr
Béla Tarr (f. 21. júlí 1955) er ungverskur kvikmyndagerðarmaður. Tarr hóf leikstjórnarferil sinn með myndinni Családi tűzfészek (1979) sem hann kallar „félagslega kvikmyndagerð“, sem miðar að því að segja hversdagslegar sögur um venjulegt fólk, oft í stíl „cinéma vérité“. Næstu ár breytti hann þema kvikmynda sinna og um kvikmyndastíl. Tarr hefur verið sagður svartsýnn á mannkynið; persónur í verkum hans eru oft kaldhæðnislegar og eiga í róstusamlegum samskiptum sem gagnrýnendur hafa túlkað sem svartan húmor.
Béla Tarr | |
---|---|
Fæddur | 21. júlí 1955 Pécs í Ungverjalandi |
Þjóðerni | Ungverskur |
Störf | Kvikmyndaleikstjóri Handritshöfundur Framleiðandi |
Ár virkur | 1971-í dag |
Eftir að Hesturinn í Tórínó (2011) kom út tilkynnti Tarr að hann ætlaði að hætta í kvikmyndagerð. Árið 2013 stofnaði hann kvikmyndaskólann Film Factory í Sarajevó í Bosníu og Hersegóvínu.
Tarr hlaut heiðursverðlaun Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík árið 2011 fyrir ævistarf í þágu kvikmyndalistarinnar.[1] Tarr var einn framleiðanda íslensku kvikmyndarinnar Dýrið (2021) eftir Valdimar Jóhannsson en þeir kynntust þegar Valdimar nam við skóla Tarr árin 2012-2015.[2]
Æska
breytaTarr fæddist í Pécs en ólst upp í Búdapest.[3] Foreldrar hans unnu bæði í leikhúsum og kvikmyndabransanum; faðir hans var leikmyndahönnuður og móðir hans vann sem hvíslari í leikhúsi í yfir 50 ár.
Kvikmyndaskrá
breytaKvikmyndir í fullri lengd
breytaÁr | Upprunalegur titill | Íslenskur titill |
---|---|---|
1979 | Családi tűzfészek | Hreiðurgerð[1] |
1981 | Szabadgyalog | |
1982 | Panelkapcsolat | |
1984 | Őszi almanach | |
1988 | Kárhozat | Bölvun[4] |
1994 | Sátántangó | Kölskatangó[5] |
2000 | Werckmeister harmóniák | Harmónía Werckmeisters[6] |
2007 | A londoni férfi | |
2011 | A torinói ló | Hesturinn í Tórínó[6] |
Sjónvarpsmyndir
breyta- Makbeth (1982)
Stuttmyndir
breyta- Hotel Magnezit (1978)
- Utazás az alföldön (1995)
- Visions of Europe (2004), hluti: Prologue
Heimildamyndir
breyta- Az utolsó hajó (1990, 31 mínúta), hluti úr City Life
- Muhamed (2017, 10 mínútur)
- Missing People (2019, 95 mínútur)
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 „Tarr hlaut heiðursverðlaun RIFF - RÚV.is“. RÚV. Sótt 9. desember 2023.
- ↑ Jóhannsson 1979-, Helgi (2021-11). Ég og Dýrið (Thesis thesis).
- ↑ Adam Bingham (júlí 2011). Directory of World Cinema. Intellect Books. bls. 206–. ISBN 978-1-84150-518-3.
- ↑ Ragnarsson 1989-, Gunnar (2020-09). Jeppi á fjalli: Breytufrásögnin í Keimi af kirsuberjum eftir Abbas Kiarostami (Thesis thesis).
- ↑ Aradóttir, Júlía (6. mars 2023). „Heimsósómi með dassi af húmor - RÚV.is“. RÚV. Sótt 9. desember 2023.
- ↑ 6,0 6,1 „Tarr hlaut heiðursverðlaun RIFF - RÚV.is“. RÚV. Sótt 9. desember 2023.