Arnbjörg Sveinsdóttir

Arnbjörg Sveinsdóttir (f. 18. febrúar 1956 í Reykjavík) var þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins 2005-2009 og alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norðausturkjördæmi 2004 - 2009. Arnbjörg átti áður sæti á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Austfjarðakjördæmi 1995 - 2003. Foreldrar hennar eru Guðrún Björnsdóttir og Sveinn Már Guðmundsson. Maður hennar er Garðar Rúnar Sigurgeirsson og eiga þau tvö börn.

Arnbjörg Sveinsdóttir (ArnbS)
Formaður félagsmálanefndar
Í embætti
1999–2003
Þingflokksformaður
Í embætti
2005–2009
Formaður kjörbréfanefndar
Í embætti
2006–2009
Formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar
Í embætti
2007–2009
Alþingismaður
frá til  kjördæmi    þingflokkur
1995 2003  Austurlandskjördæmi  Sjálfstæðisfl.
2004 2009  Norðausturkjördæmi  Sjálfstæðisfl.
Persónulegar upplýsingar
Fædd18. febrúar 1956 (1956-02-18) (68 ára)
Reykjavík
Æviágrip á vef Alþingis

Arnbjörg lauk stúdentsprófi árið 1976 og stundaði laganám við Háskóla Íslands á árunum 1980-1982. Hún sat í bæjarstjórn Seyðisfjarðar 1986-1998 og var forseti bæjarstjórnar 1994-1996. Hún sat í stjórn Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi, formaður árin 1991-1992 og var á sama tíma formaður landshlutasamtaka sveitarfélaga.

Fyrir þingmennsku vann Arnbjörg við skrifstofustörf hjá Fiskvinnslunni hf. og Gullbergi hf. 1983-1990 og var skrifstofu- og fjármálastjóri Fiskiðjunnar Dvergasteins hf. 1990-1995.

  Þetta æviágrip sem tengist stjórnmálum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.