Arabískt letur
Arabískt letur er skrifmál sem er notað til að skrifa ýmis tungumál í Asíu og Afríku, svo sem arabísku, farsí og úrdú. Það er næstútbreiddasta letur heims á eftir því latneska.
Arabíska stafrófið var fyrst notað til að skrifa texta á arabísku, meðal annars Kóraninn, trúarrit íslamstrúar. Arabíska stafrófið breiddist út með múhammeðstrú. Þegar arabíska stafrófið var tekið til þess að skrifa önnur tungumál en arabísku voru ýmsir nýir stafir teknir inn eftir þörfum.
Arabískt letur er skrifað frá hægri til vinstri, með tengiskrift, og það inniheldur 28 grunnstafi (arabíska stafrófið). Það er skilgreint sem abdsjad vegna þess að stuttir sérhljóðar eru sjaldnast skrifaðir.
Arabíska stafrófið
breytaArabíska stafrófið hefur 28 bókstafi. Önnur tungumál sem tekið hafa upp sama letur hafa bætt við aukastöfum og breytt hljóðum þeirra lítilega.
Bókstafir hafa mismunandi útlit eftir því hvaða stafir koma á undan og á eftir. Sumir stafir tengjast aldrei öðrum megin.
Stök mynd | Frummynd | Miðmynd | Lokamynd | Nafn | Alg. rómv. | IPA |
---|---|---|---|---|---|---|
ﺀ | أ, إ, ؤ, ئ |
hamza | ’ | [ʔ] | ||
ﺍ | — | ﺎ | ’alif | ā | [aː] | |
ﺏ | ﺑ | ﺒ | ﺐ | bā’ | b | [b] |
ﺕ | ﺗ | ﺘ | ﺖ | tā’ | t | [t] |
ﺙ | ﺛ | ﺜ | ﺚ | thā’ | th | [θ] |
ﺝ | ﺟ | ﺠ | ﺞ | jīm | j | [ʤ] |
ﺡ | ﺣ | ﺤ | ﺢ | ḥā’ | ḥ | [ħ] |
ﺥ | ﺧ | ﺨ | ﺦ | khā’ | kh | [x] |
ﺩ | — | ﺪ | dāl | d | [d] | |
ﺫ | — | ﺬ | dhāl | dh | [ð] | |
ﺭ | — | ﺮ | rā’ | r | [r] | |
ﺯ | — | ﺰ | zāy | z | [z] | |
ﺱ | ﺳ | ﺴ | ﺲ | sīn | s | [s] |
ﺵ | ﺷ | ﺸ | ﺶ | shīn | sh | [ʃ] |
ﺹ | ﺻ | ﺼ | ﺺ | ṣād | ṣ | [sˁ] |
ﺽ | ﺿ | ﻀ | ﺾ | ḍād | ḍ | [dˁ] |
ﻁ | ﻃ | ﻄ | ﻂ | ṭā’ | ṭ | [tˁ] |
ﻅ | ﻇ | ﻈ | ﻆ | ẓā’ | ẓ | [ðˁ] |
ﻉ | ﻋ | ﻌ | ﻊ | ‘ayn | ‘ | [ʕ] |
ﻍ | ﻏ | ﻐ | ﻎ | ghayn | gh | [ɣ] |
ﻑ | ﻓ | ﻔ | ﻒ | fā’ | f | [f] |
ﻕ | ﻗ | ﻘ | ﻖ | qāf | q | [q] |
ﻙ | ﻛ | ﻜ | ﻚ | kāf | k | [k] |
ﻝ | ﻟ | ﻠ | ﻞ | lām | l | [l] |
ﻡ | ﻣ | ﻤ | ﻢ | mīm | m | [m] |
ﻥ | ﻧ | ﻨ | ﻦ | nūn | n | [n] |
ﻩ | ﻫ | ﻬ | ﻪ | hā’ | h | [h] |
ﻭ | — | ﻮ | wāw | w | [w] | |
ﻱ | ﻳ | ﻴ | ﻲ | yā’ | y | [j] |
Stílbrigði
breytaArabíska letrið hefur mörg mismunandi stílbrigði, þar á meðal:
- naskh, langalgengasta prentletrið.
- nastaʿlīq, hallandi skrautskrift. Algengt í Pakistan.
- shahmukhi
- ruq'ah, thuluth
- kufi, mjög stílfært letur með þykkum, beinum línum. Algengt í opinberum nöfnum og fyrirsögnum.
- sini
- hijazi
- Diwani, mjög listileg skraustkrift, upprunalega notuð við hirð Tyrkjaveldis.