Almannatengsl eru víðtækt hugtak og fellur ýmiss konar markaðsstarfsemi undir það. Til dæmis má nefna auglýsingar, skrif fréttatilkynninga og uppákomur sem eru skipulagðar með það í huga að fanga athygli fjölmiðla og neytenda og tryggja þannig að ímynd og ásjóna þess er nýtir sér almannatengslin sé viðkomandi í hag. Eitt helsta markmið almannatengsla er að tryggja fyrirtækjum umfjöllun í fjölmiðlum án þess að greiða fjölmiðlinum sérstaklega fyrir það. Það væri þó mikil einföldun að segja að almannatengsl snerust eingöngu um að fá ókeypis umfjöllun.

Almannatengsl á Íslandi

breyta

Sem dæmi um íslensk almannatengslafyrirtæki má nefna AP almannatengsl, Athygli, Aton.JL, Cohn & Wolfe, KOM og Góð samskipti.

Almannatengslafélag Íslands er samstarfsvettvangur þeirra sem starfa við almannatengsl á Íslandi.

Tenglar

breyta


   Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.