Alfreð Clausen - Útþrá
Alfreð Clausen syngur er 78-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1957. Á henni syngur Alfreð Clausen lögin Útþrá og Lítið blóm með hljómsveit Jan Morávek. Ingþór Haraldsson leikur einleik á munnhörpu og Eyþór Þorláksson á gítar. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Pressun: AS Nera í Osló.
Alfreð Clausen - Útþrá | |
---|---|
IM 112 | |
Flytjandi | Alfreð Clausen, hljómsveit Jan Morávek |
Gefin út | 1957 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
Lagalisti
breyta- Útþrá - Lag - texti: Jóhann Eymundsson - Jenni Jónsson - ⓘ
- Lítið blóm - Lag og texti: Jenni Jónsson
Lagið Útþrá
breytaLagið Útþrá eftir Jóhann Eymundsson er eitt af fáum „kúrekalögum” sem Íslenzkir tónar gáfu út. Óvanalegt var að heyra íslensk kúrekalög árið 1957. Ingþór Haraldsson leikur á munnhörpu og Eyþór Þorláksson á gítar.