Amanz Gressly
(Endurbeint frá Alexander Gressly)
Amanz Gressly (17. júlí 1814 – 13. apríl 1865) var svissneskur jarðfræðingur og steingervingafræðingur. Hann er talinn einn af upphafsmönnum nútímajarðlagafræði og fornvistfræði.
Hann tók þátt í Bernaleiðangrinum, sem þýski náttúrufræðingurinn dr. Georg Brenna skipulagði og fjármagnaði. Lagt var upp í leiðangurinn á Joacim Hinrich 29. maí 1861 til Noregsstranda, Jan Mayen og Íslands. Svisslendingurinn Carl Vogt, náttúrufræðingur og rithöfundur, var með í för og gaf út bókina Nord-Fahrt 1863.