Alhambra
halla- og virkjasamstæða í Granada í Andalúsíu á Spáni
(Endurbeint frá Al-Qal'at al-Ħamrā')
Alhambra (úr arabísku: الْحَمْرَاء = Al-Ħamrā', bókst. „það rauða“; fullt nafn var الْقَلْعَةُ ٱلْحَمْرَاءُ = al-Qal'at al-Ħamrā' = „rauða virkið“) er höll og virki sem márískir furstar Granada á Suður-Spáni (Al-Andalus) reistu á 14. öld. Höllin er eitt frægasta dæmið um íslamska byggingarlist á Spáni. Innan Alhambra lét Karl 5. reisa höll sína árið 1527.
Höllin er á heimsminjaskrá UNESCO.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Alhambra.