3 heimar
3 heimar er plata með íslenska tónlistarmanninnum Bubba Morthens sem kom út þann 9. október 1994. Hún, að sögn Bubba, var samin í helgarferð til Amsterdam, væntanlega sömu helgarferð sem Bubbi og Rúnar Júlíusson, félagi hans í GCD, sömdu efni á aðra plötu GCD, Svefnvana. Bubbi sagði svo að hann hafði ákveðið að platan ætti að vera
ívaf rapps og reggae-tónlistar... Það sem heillar mig í dag er ekki þetta taktfasta tölvureggae. Það verður að vera svona gangandi swing, kannski tveir tónar undir og vaðandi melódía, vélbyssukjaftur og svo fræsað við svona eldgömlum Hollywoodstöndurdum
Lagalisti
breyta- Bleikir þríhyrningar
- Brotin loforð
- Þannig er nú ástin
- Sumar konur
- Maður án tungumáls
- Hafið er ruslakista þeirra ríku
- Loksins, loksins
- Atvinnuleysið er komið til að fara
- Aldrei aftur
- Söngur Kríunnar (með KK)