3. deild karla í knattspyrnu 1968
3. deild karla í knattspyrnu var haldin í þriðja sinn árið 1968. Leikið var í þremur riðlum, þar á meðal einum sem alfarið var skipaður félögum frá Austurlandi og kepptu sigurvegararnir sín á milli ásamt neðsta liði 2. deildar um tvö laus sæti í næstefstu deild að ári, var það fyrirkomulag viðhaft vegna fjölgunar liða í efstu deild. Völsungur og Héraðsamband Snæfellsnes og Hnappadalssýslu hrepptu sætin tvö.
A-riðill
breytaUngtemplarafélagið Hrönn varð fyrsta Reykjavíkurfélagið til að taka þátt í keppni í þriðju deild. Snæfellingar höfðu talsverða yfirburði og unnu alla leiki sína í riðlinum.
Sæti | Félag | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | HSH | 6 | 6 | 0 | 0 | 23 | 10 | +13 | 12 | |
2 | Víðir Garði | 6 | 3 | 0 | 3 | 17 | 3 | +4 | 6 | |
3 | Njarðvík | 6 | 2 | 0 | 4 | 13 | 18 | -5 | 4 | |
4 | Hrönn Reykjavík | 6 | 1 | 0 | 5 | 17 | 29 | -12 | 2 |
B-riðill
breytaÍþróttafélagið Stefnir frá Súgandafirði hætti keppni. Ekki varð ljóst fyrr en vel var liðið á sumar hvernig riðillinn yrði endanlega skipaður þar sem Knattspyrnufélag Siglufjarðar og Íþróttabandalag Ísafjarðar áttu eftir að útkljá hvort félagið félli niður um deild frá fyrra ári.
Sæti | Félag | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Völsungur | 4 | 3 | 0 | 1 | 11 | 6 | +5 | 6 | |
2 | Knattspyrnufélag Siglufjarðar | 3 | 1 | 0 | 2 | 5 | 5 | 0 | 2 | |
3 | Reynir Sandgerði | 3 | 1 | 0 | 2 | 2 | 7 | -5 | 2 |
C-riðill
breytaFimm lið kepptu í Austurlandsriðli 3. deildar en Ungmennafélag Stöðfirðinga og Huginn Seyðisfirði drógu sig úr keppni.
Sæti | Félag | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Þróttur Neskaupstað | 4 | 3 | 0 | 1 | 7 | 3 | +4 | 6 | |
2 | Austri Eskifirði | 4 | 2 | 1 | 1 | 5 | 3 | +2 | 5 | |
3 | Leiknir Fáskrúðsfirði | 4 | 2 | 0 | 2 | 8 | 7 | +1 | 4 | |
4 | Spyrnir Héraði | 4 | 1 | 1 | 2 | 5 | 9 | -4 | 3 | |
5 | Hrafnkell Freysgoði | 4 | 1 | 0 | 3 | 4 | 7 | -3 | 2 |
Úrslitakeppni
breytaÚrslitakeppni fjögurra liða um tvö laus sæti fór fram á þremur dögum, 19.-21. ágúst á Melavelli og Hafnarfjarðarvelli. Völsungar og Snæfellingar tryggðu sér tvö efstu sætin, þeir síðarnefndu með 1:1 jafntefli gegn Ísfirðingum í lokaleik. Ekki tókst þó að láta úrslitaleikinn um 3. deildarmeistaratitilinn fara fram fyrr en í júlí árið eftir og urðu Húsvíkingar þar hlutskarpastir.
Sæti | Félag | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Völsungur | 3 | 2 | 0 | 1 | 9 | 5 | +4 | 4 | |
2 | HSH | 3 | 1 | 2 | 0 | 6 | 4 | +2 | 4 | |
3 | Íþróttabandalag Ísafjarðar | 3 | 1 | 1 | 1 | 4 | 5 | -1 | 3 | |
3 | Þróttur Neskaupstað | 3 | 0 | 1 | 2 | 5 | 10 | -5 | 1 |