Útgerðarfélag Reykjavíkur
Útgerðarfélag Reykjavíkur (áður Brim) er íslenskt útgerðar- og fiskverkunarfyrirtæki. Árið 2006 störfuðum rúmlega 300 manns hjá fyrirtækinu. Fyrirtækið segist hafa aflaheimildir sem nema um 25.000 þorskígildum í hinum ýmsu fisktegundum.
Fyrirtækið var stofnað 1998 af feðgunum Kristjáni Guðmundssyni, Hjálmari Kristjánssyni og Guðmundi Kristjánssyni sem gerðu út frá Rifi á Snæfellsnesi. Árið 2004 keypti fyrirtækið Útgerðarfélag Akureyrar fyrir níu milljarða af Eimskipafélagi Íslands. Fyrirtækið hét áður Útgerðarfélagið Tjaldur en nafninu var breytt í Brim árið 2005 og síðan í Útgerðarfélag Reykjavíkur 2018.[1]
Tenglar
breyta- Heimasíða
- „Með útgerðina úr föðurlegg“, viðtal við Guðmund Kristjánsson
- „Kjarni málsins“, grein í Múrnum
- „Guðmundur spáir öðru hruni“, grein af Eyjunni.is 2012 Geymt 4 desember 2012 í Wayback Machine
- ↑ Eysteinsson, Andri. „Útgerðarfélag Reykjavíkur eignast meirihluta í Brim - Vísir“. visir.is. Sótt 12. maí 2021.