Óttarr Proppé
íslenskur tónlistarmaður og stjórnmálamaður
(Endurbeint frá Óttarr Ólafur Proppé)
Óttarr Proppé (fæddur 7. nóvember 1968) er íslenskur tónlistarmaður, leikari og fyrrum stjórnmálamaður.
Óttarr var kosinn á Alþingi fyrir Bjarta framtíð árið 2013 og sat á þingi til 2017. Hann var heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar frá 11. janúar 2017 til 30. nóvember sama ár og formaður Bjartrar framtíðar frá 2015-2017. Óttarr var áður borgarfulltrúi Besta flokksins í Reykjavík frá 2010-2013.[1]
Hann er meðlimur í hljómsveitinni HAM auk þess sem hann er söngvari hljómsveitarinnar Dr. Spock. Þá lék hann í kvikmyndinni Sódóma Reykjavík árið 1992.
Eftir að Óttarr lét af þingmennsku hefur hann starfað sem verslunarstjóri í Bóksölu stúdenta.[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ Alþingi, Æviágrip - Óttarr Proppé (skoðað 28. júlí 2019)
- ↑ Mbl.is, „Fyrrverandi ráðherra verður verslunarstjóri“ (skoðað 28. júlí 2019)