Óslóartréð
Óslóartréð vísar til jólatrés sem Norðmenn færðu Íslendingum að gjöf á hverju ári síðan 1951. Óslóartréð stendur á Austurvelli og hefur tendrun þess mikilvægan sess í jólaundirbúningi borgarbúa. Hefð er fyrir því að fjölskyldur komi saman á Austurvelli á Aðventuhátíðinni.
Sendiherra Noregs afhenti tréð formlega, Grenitréð var höggvið í Noregi (rauðgreni). Tréð kom frá Noregi 1951-2013 en frá 2014 hefur verið höggvið sitkagreni í Heiðmörk fyrir utan Reykjavík. [1] [2]
Þann 20. janúar 2009 var kveikt í Oslóartrénu. Bruni trésins er af mörgum talinn einn minnisstæðasti atburður mótmælanna þá um veturinn, Búsáhaldabyltingarinnar svokölluðu. Engar pólitískar afleiðingar urðu vegna verknaðarins. Reykjavíkurborg fékk aftur jólatré að ári liðnu.[3] Árið 2012 fór Jón Gnarr, þáverandi borgarstjóri Reykjavíkurborgar sjálfur til Noregs til þess að fella Óslóartréið.[4]
Tilvísanir
breyta- ↑ Íslendingar fá ekki fleiri jólatré Mbl.is
- ↑ http://reykjavik.is/thjonusta/adventuhatid-ljosin-tendrud-osloartrenu
- ↑ http://www.mbl.is/frettir/innlent/2010/11/26/kveikt_a_osloartrenu_a_sunnudag/
- ↑ Jón Pétur Jónsson (7.11.2012). „Jón Gnarr felldi Óslóartréð“. Mbl.is.