CD Tenerife
Íþróttafélag Tenerife (á spænsku: Club Deportivo Tenerife) er knattspyrnufélag í borginni Santa Cruz de Tenerife á Tenerife á Spáni. Félagið var stofnað árið 1912 undir útlenska heitinu Sporting Club Tenerife[1] og spilar nú í annarri deild í knattspyrnu á Spáni. Einkennislitirnir eru hvítur og blár.
Club Deportivo Tenerife | |||
Fullt nafn | Club Deportivo Tenerife | ||
Stofnað | 21. nóvember 1912 | ||
---|---|---|---|
Leikvöllur | Heliodoro Rodríguez López | ||
Stærð | 22.948 | ||
Stjórnarformaður | Miguel Concepción Cáceres | ||
Knattspyrnustjóri | Victor Moreno Soler | ||
Deild | La Liga 2 | ||
2021/22 | 5. | ||
|
Félagið hefur spilað 13 leiktíðir í efstu deild (La Liga) og 42 leiktíðir í annarri deild. Síðast spilaði liðið í La Liga árið 2010. Út frá stigafjölda í fyrstu deild er liðið 28. besta knattspyrnulið Spánar (á þeim lista er Real Madrid efst), og var 137. besta knattspyrnulið 20. aldar í Evrópu skv. Alþjóðlega knattspyrnutölfræðifélaginu.
Liðið hefur tvisvar lent í fimmta sæti í La Liga (1992–93 og 1995–96), það komst í undanúrslit í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu veturinn 1996–97, og sigrað Hans Gampers-bikarinn á móti FC Barcelona árið 1993. Mikill keppnisrígur helst milli íþróttafélags Tenerife og íþróttasambands Las Palmas.
Tilvísanir
breyta- ↑ „Noventa años en blanco y azul“. La Opinión de Tenerife.
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Club Deportivo Tenerife“ á spænsku útgáfu Wikipedia. Sótt 28. febrúar 2019.