Árbær
(Endurbeint frá Árbæjarhverfi)
64°06′49″N 21°47′28″V / 64.11361°N 21.79111°V
Árbær er eitt af fjölmennustu hverfum Reykjavíkurborgar, nefnt í höfuðið á býli sem þar stóð áður. Þar er Árbæjarsafn, þar sem eru varðveitt mörg söguleg hús í Reykjavík. Þar er líka Árbæjarlaug. Íþróttafélagið í hverfinu heitir Fylkir.
Til Árbæjarhverfis teljast Selás, Árbær, Ártúnsholt, Bæjarháls og Norðlingaholt.
Hverfið markast af Vesturlandsvegi, Úlfarsá að sveitarfélagamörkum Mosfellsbæjar, til austur og suðurs með sveitarfélagamörkum um Hólmsheiði að Elliðavatni, Elliðaám, syðri kvísl og Reykjanesbraut.
Íbúar Árbæjarhverfis voru 11.974 árið 2023.[1]
Tilvitnanir
breytaMér líst bara vel á þessa tillögu. En er ekki hyggilegast að friðlýsa fyrst Árbæjarhverfi, og ef það gefst vel, að friðlýsa þá allt höfuðborgarsvæðið í framhaldinu? | ||
— Davíð Oddsson á borgarstjórnarfundi, eftir að Kvennalistinn í borgarstjórn hafði borið fram tillögu um að friðlýsa Reykjavík.
|
Tilvísanir
breyta- ↑ „Mannfjöldi eftir hverfum í Reykjavík, kyni og aldri 1. janúar 2011-2023“. Hagstofa Íslands.
Tengill
breyta- Í Árbæ á 185 ára afmæli Reykjavíkur, Morgunblaðið, 183. tölublað (18.08.1971), Blaðsíða 12