Álftaver

sveit á Suðurlandi

Álftaver er lítil og flatlend sveit í Vestur-Skaftafellssýslu, vestan við Kúðafljót og austan við Mýrdalssand, en að norðan fellur áin Skálm á byggðarmörkum. Sveitin er stundum nefnd Ver. Hún myndaði Álftavershrepp og Þykkvabæjarklausturssókn. Gengið hefur á byggðina í Kötlugosum.

Jarðmyndanir

breyta

Í Ytra-Eldgjárhrauni í Álftaveri er þyrping af gervigígum.[1]

Bæjaröð í manntali 1801

breyta
  • Mýrar
  • Sauðhúsanes
  • Þykkvabæjarklaustur
  • Hraungerði
  • Bólhraun
  • Hraunbær
  • Herjólfsstaðir
  • Holt
  • Skálmarbær
  • Jórvík

Forn eyðibýli

breyta
  • Dynskógar
  • Laufskálar

Tilvísanir

breyta
  1. Þorleifur Einarsson: Jarðfræði, 2. prentun, bls. 97, 105 og 307, Reykjavík 1968.

Heimildir

breyta
  • Gissur Jóhannesson og Jón Ísleifsson: "Álftavershreppur", Sunnlenskar byggðir VI, bls. 287-329, Búnaðarsamband Suðurlands 1985.
  • Þorsteinn Jósepsson: Landið þitt, bls. 12, Reykjavík 1966.
   Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.