Wojciech Jaruzelski
Wojciech Jaruzelski (6. júlí 1923 − 25. maí 2014) var pólskur herforingi og stjórnmálamaður. Hann var aðalritari sameinaða pólska verkamannaflokksins frá 1981 til 1989 og sem slíkur síðasti leiðtogi Alþýðulýðveldisins Póllands. Hann var einnig forsætisráðherra Póllands frá 1981 til 1985 og þjóðhöfðingi landsins frá 1985 til 1990 (með titilinn formaður ríkisráðsins frá 1985 til 1989 og forseti frá 1989 til 1990). Hann var líka síðasti yfirhershöfðingi pólska alþýðuhersins. Hann sagði af sér í kjölfar pólsku hringborðssamþykktarinnar 1989 sem leiddi til lýðræðislegra kosninga í landinu.