Vilhelm Marstrand
(Endurbeint frá Wilhelm Marstrand)
Vilhelm Nikolaj Marstrand (24. desember 1810 – 25. mars 1873) var danskur listmálari sem fékkst einkum við myndir af sögulegum eða goðsögulegum atriðum í nýklassískum stíl. Hann fæddist í Kaupmannahöfn, lærði hjá Cristoffer Vilhelm Eckersberg og síðan í Akademíunni. Hann dvaldist á Ítalíu 1836 til 1841.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Vilhelm Marstrand.