Wikipedia:Úrvalsgreinar/Ágústus
Ágústus einnig nefndur Augustus, Caesar Ágústus, Caesar Augustus, Octavíanus eða Octavíanus Ágústus (Latína:IMPERATOR CAESAR DIVI FILIVS AVGVSTVS Imperator Caesar, sonur hins guðlega, Ágústus; 23. september 63 f.Kr. – 19. ágúst 14 e.Kr.), var fyrsti og einn mikilvægasti keisari Rómaveldis, enda þótt hann upphefði ekki stöðu sína og kysi fremur titilinn princeps, sem þekktist frá lýðveldistímanum og er venjulega þýddur „fyrstur borgaranna“. Nafn Ágústusar, sem hét raunverulega Octavíanus og þar áður Octavíus, var upphaflega virðingartitill (myndaður af sögninni augeo, sem þýðir að auka eða upphefja, lofa eða dýrka), sem öldungaráð Rómar veitti honum árið 27 f.Kr. Sú venja er meðal sagnfræðinga að nota nafnið Octavíanus til að vísa til hans fyrir árið 27 f.Kr. en Ágústus eftir árið 27 f.Kr. Verður þeirri reglu fylgt hér.
Octavíanus var erfingi Júlíusar Caesars, sem var ömmubróðir hans. Eftir morðið á Caesari gekk Octavíanus í bandalag með Marcusi Antoniusi og Marcusi Lepidusi. Þegar slitnaði upp úr bandalaginu kom til átaka milli Marcusar Antoniusar og Octavíanusar, sem hafði betur. Í kjölfarið komst Octavíanus til valda í Róm. Hann viðhélt hefðum rómverska lýðveldisins að forminu til en var í reynd sjálfráður einvaldur í yfir 40 ár. Valdatími hans myndar skiptinguna á milli lýðveldistímans og keisaratímans í Róm en keisaratíminn er venjulega talinn hefjast árið 27 f.Kr. Hann batt enda á borgarastríð sem áður hafði geisað og leiddi Róm inn í nýjan tíma hagsælda og friðar, Pax Romana eða Rómarfriðarins. Hann var giftur Liviu Drusillu í 51 ár.