Vopnin kvödd
Vopnin kvödd (enska: A Farewell to Arms) er skáldsaga eftir Ernest Hemingway sem hann byggði á starfi sínu sem sjúkrabílstjóri í fyrri heimsstyrjöldinni. Vopnin kvödd kom út árið 1929 og í íslenskri þýðingu Halldórs Laxness 1941.
Höfundur | Ernest Hemingway |
---|---|
Upprunalegur titill | A Farewell to Arms |
Þýðandi | Halldór Laxness (1941) |
Land | Bandaríkin |
Tungumál | Enska |
Útgefandi | Charles Scribner's Sons |
Útgáfudagur | 1929 |
ISBN | ISBN 9979319089 |
Laxness segir í viðtali við Vísi 1981 um þýðingu sína: [1]
Eitt erfiðasta verk sem ég hef unnið um dagana var að þýða Farewell to Arms. Ég hérumbil gafst upp á því. En ég lærði mikið á því. Líka Indriði Þorsteinsson... Ég byrjaði held ég síðsumars á því, fyrsta stríðsárið. Fór svo uppá Hellisheiði, þegar leið á haust; settist þar að í Skíðaskálanum í sífeldum byl. Ætli það hafi ekki verið einir tveir þrír mánuðir sem ég var allur í þessu; gerði að minnsta kosti ekkert ilt af mér á meðan, hélt ég. Þetta þótti með fádæmum vond bók hér á landi. Aldrei í sögu heimsins hefur nokkrum manni verið svo úthúðað fyrir þýðingu eins og mér fyrir Vopnin kvödd. Þjóðin sjálf og margir hennar bestu menn risu upp gegn þessum andskota í bókarlíki. |
Tilvísun
breyta Þessi bókmenntagrein sem tengist Bandaríkjunum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.