Vinnufatabúðin
Vinnufatabúðin er fataverslun við Laugaveg í Reykjavík, stofnuð árið 1941 og starfaði til 2023.
Saga
breytaVinnufatabúðin hóf rekstur að Laugavegi 76 árið 1941 og hefur starfað þar óslitið síðan og er meðal elstu starfandi verslana í Reykjavík. Þórarinn Kjartansson opnaði Vinnufatabúðina, en hann hafði um árabil rekið fyrirtækið Gúmmívinnustofuna í sama húsi. Eins og nafnið gefur til kynna hefur verslunin alla tíð sérhæft sig í grófgerðum fatnaði og vinnufötum.
Búðinni var lokað árið 2023.