Verkamannabústaðir
Verkamannabústaðir eru félagslegt húsnæði sem venjulega eru reistir af stjórnvöldum (ríki eða sveitarfélögum) eða stéttarfélögum með styrk frá stjórnvöldum. Tilgangur þess er að gefa tekjulægri stéttum tækifæri til að komast í húsnæði með lágum greiðslum.
Fyrstu verkamannabústaðirnir sem reistir voru á Íslandi voru 70 íbúðir við Hringbraut í Reykjavík. Verkamannabústaðirnir við Hringbraut voru reistir af Byggingafélagi alþýðu eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar 1931.