Vífill (þræll)
Vífill var annar af tveimur nafngreindum þrælum Ingólfs Arnarsonar landnámsmanns. Að sögn Landnámabókar fundu þrælarnir Karli og Vífill öndvegissúlur Ingólfs við Arnarhvol í Reykjavík.
Samkvæmt Landnámu hlaut Vífill síðar frelsi og setti niður bú sitt að Vífilsstöðum
Vífilsgata í Reykjavík, Vífilsfell og Vífill (skátafélag) draga einnig nafn sitt af þrælnum Vífli.