The Sweetest Thing er bandarísk gamanmynd með rómantísku ívafi frá árinu 2002 sem Roger Kumble leikstýrði.

The Sweetest Thing
Auglýsingaplakat myndarinnar.
LeikstjóriRoger Kumble
HandritshöfundurNancy Pimental
FramleiðandiCathy Conrad
LeikararCameron Diaz

Christina Applegate

Selma Blair
FrumsýningFáni Bandaríkjana 12. apríl 2002
Fáni Íslands 2. ágúst 2002
Lengd88 mín.
Tungumálenska
Aldurstakmark12 ára
Ráðstöfunarfé$43.000.000

Söguþráður

breyta

Christina Walters og Courtney Rockcliffe, tvær af heitustu partíljónunum í San Francisco, reyna að hugga herbergisfélaga þeirra Jane Burns sem er í ástarsorg með því að taka hana með þeim út á lífið. Christina hittir Peter Donahue um kvöldið og verður yfir sig ástfangin af honum um leið. Peter er trúlofaður en Christina misskilur hann og heldur að það sé bróðir hans sem ætlar að fara að gifta sig. Eftir kvöldið er liðið ákveður Courtney að hjálpa Christinu að finna Peter aftur með því að fara í ferð frá San Francisco til Somersets, þar sem brúðkaupið á að eiga sér stað. Þegar þær mæta á áfangastað komast þær að því að Peter er í raun brúðguminn. Á meðan athöfnin á sér stað játa Peter og unnusta hans að þau elski hvorugt hvort annað og ættu ekki að giftast. Nokkrum mánuðum seinna er Christina enn í ástarsorg eftir að hafa tapað Peter þó að Courtney og Jane séu báðar komnar í ný ástarsambönd. Eitt kvöld, þegar stelpurnar koma heim eftir að hafa verið á djamminu finna þær Peter sofandi fyrir framan dyrnar hjá þeim. Hann segir Christinu að hætt hafði verið við brúðkaupið og þau hefja samband og giftast síðan.

Leikendur

breyta
   Þessi kvikmyndagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.