The Observer
The Observer er breskt blað sem gefið er út á sunnudögum. Það er systurblað The Guardian, sem keypti það árið 1993. The Observer tekur frjálslynda afstöðu í flestum málum eins og systurblaðið. Það er heimsins elsta sunnudagsblað.
Saga
breytaW.S. Bourne gaf fyrsta tölublaðið út 4. desember 1791 og var það fyrsta sunnudagsblað í heimi. Hann bjóst við að dagblaðið yrði tekjuöflunarleið fyrir sig en þess í stað komst hann í 1.600 punda skuld. Árið 1794 reyndi hann að selja andstæðingum ríkisstjórnarinnar blaðið en tókst það ekki. Þá bauð bróðir Bournes ríkistjórninni blaðið en boðið var afþakkað. Hins vegar féllst stjórnin á að veita blaðinu nokkurn styrk gegn því að geta haft áhrif á ritstjórnarstefnu þess. Fyrir vikið tók blaðið stöðu gegn róttæklingjum á borð við Thomas Paine, Francis Burdett og Joseph Priestley.
Ritstjórar
breyta- W. S. Bourne og W. H. Bourne (1791–1807)
- Lewis Doxat (1807–1857)
- Joseph Snowe (1857–1870)
- Edward Dicey (1870–1889)
- Henry Duff Traill (1889–1891)
- Rachel Beer (1891–1904)
- Austin Harrison (1904–1908)
- James Louis Garvin (1908–1942)
- Ivor Brown (1942–1948)
- David Astor (1948–1975)
- Donald Trelford (1975–1993)
- Jonathan Fenby (1993–1995)
- Andrew Jaspan (1995–1996)
- Will Hutton (1996–1998)
- Roger Alton (1998–2007)
- John Mulholland (2008–)
Heimild
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „The Observer“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 15. október 2010.