Fuglarnir (kvikmynd)
(Endurbeint frá The Birds)
Fuglarnir (enska: The Birds) er bandarísk kvikmynd í leikstjórn Alfred Hitchcock frá árinu 1963. Myndin er byggð á samnefndri smásögu eftir Daphne Du Maurier. Hitchcock hafði áður gert myndina Rebecca eftir sögu Du Maurier. Við gerð Fuglanna var notast við nýstárlegar aðferðir í tæknibrellum og þótti myndin mikið afrek á sínum tíma.
The Birds | |
---|---|
Leikstjóri | Alfred Hitchcock |
Handritshöfundur | Evan Hunter |
Framleiðandi | Alfred Hitchcock |
Leikarar |
|
Tónlist | Bernard Herrmann |
Dreifiaðili | Universal Pictures |
Frumsýning | 28. mars 1963 |
Lengd | 119 mín. |
Tungumál | enska |
Ráðstöfunarfé | $2.500.000 |
Söguþráður
breytaMelanie Daniels, ung stúlka frá San Francisco, eltir Mitch Brenner, ungan og efnilegan piparsvein til Bodega Bay þar sem hann dvelur hjá fjölskyldu sinni um helgar. Fljótlega eftir komu hennar verður hún fyrir árás fugla og vekur það athygli bæjarbúa. Eftir því sem líður á myndina fjölgar árásunum og bæjarbúar fara að leita skýringa.
Leikarar
breyta- Rod Taylor sem Mitch Brenner
- Tippi Hedren sem Melanie Daniels
- Jessica Tandy sem Lydia Brenner
- Suzanne Pleshette sem Annie Hayworth
- Veronica Cartwright sem Cathy Brenner
- Ethel Griffies sem frú Bundy
- Charles McGraw sem Sebastian Sholes