Sagan af Tuma litla
(Endurbeint frá The Adventures of Tom Sawyer)
Sagan af Tuma litla (enska: The Adventures of Tom Sawyer) er skáldsaga frá árinu 1876 eftir bandaríska rithöfundinn Mark Twain. Bókin fjallar um Tuma, ungan dreng sem elst upp við Mississippifljótið. Sögusviðið er uppspunninn bær sem höfundurinn kallar St. Petersburg, en Twain sótti innblástur í sinn eigin heimabæ, Hannibal í Missouri, þegar hann skapaði sögusviðið.
Höfundur | Mark Twain |
---|---|
Upprunalegur titill | The Adventures of Tom Sawyer |
Þýðandi | Þýðandi ókunnur (1944) |
Útgefandi | American Publishing Company |
Útgáfudagur | 1876 |
ISBN | ISBN 9979571721 |
Framhald | Stikilberja-Finnur |